Frí sending við kaup yfir 20.000 kr. · 30 daga skilarétturOpnunartími 461-1516
Gregory ALPINISTO 38 LT MD/LG Piton Blue
Gregory

Gregory ALPINISTO 38 LT MD/LG Piton Blue

36.995 kr.Á lager
1
  • Frí sending við kaup yfir 20.000 kr.
  • 30 daga skilaréttur gegn framvísun sölureiknings
  • Verslun að Kaupvangsstræti 4, Akureyri – sími 461-1516
Vörunúmer
st-130230/9986
Vörumerki
Gregory

Um vöruna

Gregory Alpinisto LT 38 er vandaður fjallaskíðabakpoki hannaður fyrir krefjandi skíða- og fjallaferðir. Pokinn býður upp á allt það helsta sem þarf fyrir fjallaskíðaiðkun, með fjölmörgum festingum og snjöllum lausnum fyrir búnað og fylgihluti. Bakpokinn er fjölstillanlegur og hægt að aðlaga hann að líkamslagi og því hvar þyngdarpunkturinn hvílir best á öxlum, baki eða mjöðmum sem tryggir þægilegan burð í löngum ferðum. Sterkbyggður og endingargóður hágæðapoki sem hentar jafnt fyrir styttri dagstúra sem og lengri ævintýri á fjöllum.

Helstu eiginleikar:

  1. Púðað mittisbelti með lykkjum fyrir aukabúnað
  2. Þægilegar axlarólar með innbyggðri öryggisflautu
  3. Vel hólfaður með rúmgóðu aðalhólfi og öryggisvasa með rennilás
  4. Festingar að framan fyrir ísöxi
  5. Hjálmafestingar
  6. Festingar fyrir línur og annan skíðabúnað
  7. Stórt op á aðalhólfi með draglokun
  8. Fjölmargar ytri festingar fyrir axir, stafi og annan búnað
  9. Álrammi með stífingum sem veitir góðan stuðning og hreyfanleika
  10. Hentar vel fyrir lengri skíðaferðir og göngur á snjóskóm

Stærðir og mál:

  1. Mittismál:S/M: 68,5 – 116,8 cm
  2. M/L: 73,7 – 129,5 cm
  3. Þyngd:S/M: 1,16 kg
  4. M/L: 1,03 kg
  5. Rúmtak:S/M: 38 L
  6. M/L: 40 L
  7. Burðarþol: 15,9 kg
  8. Mál:S/M: 66 × 20,5 × 22,9 cm
  9. M/L: 71,1 × 30,5 × 22,9 cm

Tæknilegir eiginleikar:

  1. Hannaður fyrir: herra og dömur
  2. Hentar fyrir: fjallaskíðun og skíðaferðir
  3. Innri burðargrind: Já
  4. Burðardempun: Fusion Lite
  5. Aðgengi að hólfi: op að ofan
  6. Lokanir: spennur og rennilásar
  7. Fjöldi utanáliggjandi hólfa: 2
  8. Hentar fyrir vökvapoka: Já
  9. Vökvapoki fylgir: Nei
  10. Mittisbelti: Já
  11. Mittishólf: Já
  12. Festingar fyrir stafi: Já

Efni:

  1. Ytra efni: 100% nælon
  2. Poki: 100D High Density nælon / 210D High Density nælon
  3. Botn: 210D High Density nælon
  4. Fóðrun: upphleypt nælon og upphleypt polyester
  5. Dempun: LifeSpan EVA frauð