Frí sending við kaup yfir 20.000 kr. · 30 daga skilarétturOpnunartími 461-1516
Ospray Rolling Transporte Carry On Black
Osprey

Ospray Rolling Transporte Carry On Black

49.995 kr.Ekki til á lager

Hafðu samband fyrir upplýsingar um hvenær varan kemur aftur. Hafa samband

  • Frí sending við kaup yfir 20.000 kr.
  • 30 daga skilaréttur gegn framvísun sölureiknings
  • Verslun að Kaupvangsstræti 4, Akureyri – sími 461-1516
Vörunúmer
ospray rolling
Vörumerki
Osprey
Litur
Black
Stærð
40 L

Um vöruna

Rolling Transporter er frábær ferðataska sem þægilegt er að ferðast með, sterkbyggð og þolmikil. Sterk hjólin þola mikið brölt um blandað landslag og auðvelda ferðalagið til muna. ErgoGrip™ handfangið er útdraganlegt og þægilegt í notkun. Gerð úr TPU húðuðu nylon sem hrindir vel frá sér vatni og er sterkt en þó mjúkt viðkomu. Lögun töskunnar tekur mið af því að rúma sem allra mest og nýtast sem best. Að innaverðu eru netavasar sem henta vel fyrir geymslu smáhluta og stórt aðalhólfið opnast á hlið, líkt og á ferðastösku. Að ofanverðu er hólf sem auðvelt er að komast í sem hentar vel fyrir t.d. veski eða gögn. Einnig er sérstakt hólf að ofanverðu svo hægt sé að auðkenna töskuna með persónuskilríkjum með áberandi hætti. Þægileg handföng eru á töskunni svo auðvelt er að grípa í hana og toga niður, ef hún er t.d. geymd ofarlega (t.d. farangurssými flugvéla).

Rolling Transporter er fáanleg í stærðunum 40L, 90L og 120L.

Nokkrir af kostum Rolling Transporter:

  • 4 handföng sem auðvelt er að grípa í
  • Sterkt, endingargott og mjög vatnsþolið efni
  • Efni: 840D Nylon TPU (tvöfalt húðað)
  • Sérstakt hólf til þess að merkja með persónuskilríkjum
  • Ólar að innanverðu til þess að þjappa saman farangrinum
  • Innri vasar úr netaefni (fyrir smáhluti)
  • Rennilásar sem hægt er að setja lás á
  • Sterkur HighRoad™ hjólabúnaður
  • Útdraganlegt ErgoGrip™ handfang
  • Aðalhólf opnast með rennilás (sem hægt er að læsa)
  • Hlíf yfir rennilás að aðalhólfi
  • Þægileg í notkun
  • Hægt að taka með í handfarangur flestra flugfélaga samkvæmt EU reglum um hámarksstærð handfarangurs.
  • Þyngd: 2,74 kg
  • Stærð: 60 x 36 x 28