
Yaktrax Walk hálkugormar
Hafðu samband fyrir upplýsingar um hvenær varan kemur aftur. Hafa samband
- Frí sending við kaup yfir 20.000 kr.
- 30 daga skilaréttur gegn framvísun sölureiknings
- Verslun að Kaupvangsstræti 4, Akureyri – sími 461-1516
- Vörumerki
- Yaktrax
- Flokkur
- Hálkugormar og broddar
Um vöruna
Yaktrax hálkugormana þekkir margur útivistarmaðurinn af góðri raun, en þeir sem reynt hafa fullyrða að á þeim megi hlaupa á rennblautum ís án þess að eiga á hættu að renna til og detta. Þeir eru því afar góður kostur fyrir alla þá sem eru á ferðinni útivið þegar hálka og snjór gerir erfiðara um vik að ná góðri fótfestu. Skokkarar, bréfberar, hundaeigendur, stafgönguiðkendur, eldri borgarar á heilsubótargöngu, þannig mætti lengi telja alla þá sem geta nýtt sér kosti þess að hafa Yaktrax á fótum.
Walker er einfaldari og liprari útgáfan af hálkugormunum frá Yaktrax og henta hverjum þeim sem þarf að bregða slíku undir skóna til að komast erinda sinna þó að hálka sé á stéttum og strætum.



